Pendúlsveifla

Í þessu JAVA-snifsi er unnt að kanna breytingar sem verða á útslagi (elongation), hraða, snertihröðun, krafti og orku (breyting á skriðorku og stöðuorku) í pendúlsveiflu þegar ekki gætir áhrifa núnings.

Endurræsingarhnappurinn (Reset) færir pendúlinn í upphafsstöðu. Með starthnappi er pendúllinn settur af stað en unnt er að stoppa hreyfinguna og setja hana af stað aftur með biðhnappinum (pause/resume). Þá er unnt að velja þætti sem eiga að koma fam á teikningunni. Hæghreyfingin gengur fimmfalt hægar en eðlileg hreyfing.
Unnt er að breyta lengd pendúlsins, massanum og sveifluvíddinni.

Eins og fram kemur í útleiðslu á sveiflutíma pendúls hefur mikil sveifluvídd áhrif á sveiflutímann en ekki er gert ráð fyrir því þessu snifsi.

 

 
Physics
Physics Applets

URL: http://www.walter-fendt.de/ph14is/pendulum_is.htm
© Walter Fendt, May 21, 1998
© Icelandic version: Þorsteinn Egilson
Last modification: November 14, 2005